Ísafjörður við Skutulsfjörð
Rekstrarlausnir

Rekstrarþjónusta er alhliða þjónusta við fyrirtæki, félagasamtök eða einstaklinga. Við leysum allt sem snýr að upplýsingatækni, hvort heldur málið snýr að vélbúnaði eða hugbúnaði, leyfismálum eða sérlausnum.

Nethönnun býr yfir gríðarlegri reynslu af rekstri tölvukerfa. Frá upphafi höfum við leitast við að veita viðskiptavinum okkar persónulega, faglega og skjóta þjónustu. Starfsmenn Nethönnunar búa yfir áralangri reynslu og þekkingu á flestum þeim kerfum sem fyrirtæki nota í dag. Það er metnaður okkar að veita viðskiptavinum okkar bestu þjónustu sem möguleg er, gildir þá einu hvort um er að ræða lítil og einföld eða stór og flókin netkerfi.

Við bjóðum upp á fasta staðlaða samninga eða sveigjanlegar lausnir sérsniðnar að þínum þörfum þar sem föst þjónusta er skilgreind sem og viðbragðstími og neyðaraðstoð.

Hvað viltu að við gerum?
Nethönnun hjálpar þér að finna þann þjónustusamning sem hentar best. Viltu að við sjáum alfarið um rekstur allra þeirra upplýsingakerfa sem heyra undir fyrirtæki þitt þ.m.t. rekstur útstöðva og uppfærslu þeirra? Við getum einnig veitt þér lágmarksstuðning (bakland) sem snýr aðeins að rekstri miðlara þinna til að tryggja öryggi og rekstur. Þarft þú sérsniðna lausn sem hentar þér? Til dæmis lausn fyrir afritun og öryggi gagna eða viðhald og rekstur gagnagrunna?

Af hverju?
Afar mikilvægt er að rekstur tölvukerfa sé í höndum fagmanna, enda eru þau flestum fyrirtækjum lífsnauðsynleg.
Fleiri og fleiri fyrirtæki sjá að úthýsing skilar í flestum tilfellum verulegum sparnaði. Einnig tryggja fyrirtæki sér aðgengi að úrvali reyndra sérfræðinga á sviði upplýsingatækni og fjarskipta.

Rekstrarlausnir okkar
Altækur rekstur
Kerfisveita
Rekstur og viðhald
Afritun og öryggi
Gagnasambönd og tengingar