Ísafjörður við Skutulsfjörð
Upplýsingaöryggi

Kröfur um upplýsingaöryggi hafa stóraukist á síðustu árum frá viðskiptavinum fyrirtækja, stjórnendum þeirra, eftirlitsstofnunum og Persónuvernd. Við veitum viðskiptavinum okkar greiningu og ráðgjöf við innleiðingu og eftirlit með upplýsingaöryggi og gerum stöðumat á öryggismálum fyrirtækja eftir óskum.

Starfsmenn okkar hafa mikla reynslu í uppsetningu og rekstri hugbúnaðarlausna sem hafa það hlutverk að auka upplýsingaöryggi og öryggi í kerfisrekstri almennt. Þær öryggislausnir sem við höfum til endursölu eiga það sameiginlegt að vera fremstar á sínu sviði í heiminum í dag. Við hvetjum alla, sem hafa áhuga á að auka upplýsingaöryggi eða öryggi í kerfisrekstri, að skoða nánar þessar lausnir. Góðar lausnir eru ekkert án kunnáttu þeirra sem sjá um endursölu á þeim. Tæknimennirnir okkar hafa yfirgripsmikla þekkingu á þessum lausnum sem komin er til með reynslu af uppsetningu og rekstri þessara lausna, og símenntun í öryggismálum á upplýsingatæknisviði.

Sé þörf á innleiðingu öryggisstaðla, áhættumati, úttekt á upplýsingakerfum eða uppsetningu og umsjón með öryggismálum almennt getum við komið með hagkvæmar lausnir sem virka.

Næstu skref

Hafðu samband við okkur og fáðu nánari upplýsingar um þær þjónustuleiðir sem við bjóðum.

Smelltu hér