Nethönnun er framsækið þjónustu- og ráðgjafarfyrirtæki sem hefur það að markmiði að veita persónulega, góða og alhliða tölvuþjónustu.
Við höfum sérhæft okkur í ráðgjöf og rekstri tölvukerfa, allt frá viðhaldsrekstri og aðstoð, til reksturs tölvukerfa frá A-Ö fyrir viðskiptavini okkar.
Okkar helsti styrkur er sú sérþekking sem við höfum öðlast á áralangri reynslu í heimi upplýsingatækni. Reynsla og ástríða sérfræðinga Nethönnunar á viðfangsefnum líðandi dags hefur skilað okkur í fremstu röð meðal jafningja. Við leitumst við að halda okkur í fremstu víglínu þekkingar og tækni, ekkert tengt upplýsingartækni er okkur óviðkomandi.
Við leitumst við að leita hagkvæmustu leiða fyrir viðskiptavini okkar bæði hvað varðar vinnu og vörur sem við bjóðum upp á.
Hugbúnaðardeild Nethönnunar hefur þróað á undanförnum árum lausnir sem eru sérsniðnar að þörfum íslenskra fyrirtækja með möguleika á tengingum við algengustu rekstrarlausnir í notkun í dag. Nethönnun hefur einnig hugbúnaðarlausnir til endursölu sem eru leiðandi á sínu sviði. Allar hafa þær skarað framúr öðrum lausnum með tilliti til gæða og verðlags.
Nethönnun býður upp á alhliða þjónustu í veflausnum á sviði vefumsýslu, vefhönnunar og sölu- og markaðsetningu á netinu. Starfsmenn okkar hafa áralanga reynslu af þróun eMarketing lausna, leitarvélabestun, markpóst herferða á netinu og ýmsar markaðslausnir fyrir síma og kioska.
Eins og nafnið gefur til kynna er fyrirtækið einnig öflugt á sviði alhliða hönnunar. Allt frá ímyndarmörkun fyrirtækja og auglýsingaherferðum, til auglýsingahönnunar og hreyfimyndagerðar. Félagið hefur komið að mörgum og stórum margmiðlunarverkefnum fyrir mörg af stærstu fyrirtækjum landsins undanfarin ár og má þar helst nefna margmiðlunarkynningar fyrir ráðstefnur, kioska og aðrar hreyfimyndakynningar fyrir stórar sýningar og viðburði.
Nethönnun var stofnað árið 1999 og á rætur sínar að rekja til Vestfjarða. Okkur þykir því við hæfi að hafa myndir frá Vestfjörðum á vefnum okkar til að tengja síðuna við rætur félagsins. Myndirnar gefa síðunni einnig þjóðlegan brag sem er góð lýsing á stefnu okkar í markaðssetningu. Við höfum ávallt þróað hugbúnað fyrir íslensk fyrirtæki og leitast við að bjóða íslenskum fyrirtækjum hugbúnaðarlausnir, sem henta til notkunar hér á landi, til endursölu.


