Silfurtorg á Ísafirði
Öryggislausnir

Þær öryggislausnir sem við bjóðum til endursölu eiga það sameiginlegt að vera allar mjög öflugar í öryggisstjórnun og tryggja fljóta og árangursríka leið til að greina og ráða bug á ýmsum váboðum í tölvu- og netbúnaði. Einnig bjóðum við alhliða lausnir í vírus- og ruslpóstvörnum fyrir póstþjóna, netþjóna og tölvur notenda.


Hvernig lausn vantar þig?

Örugg og áreitislaus netnotkun
Ýmsar reglur má nota til að koma í veg fyrir óæskilega netnotkun og loka þeim gáttum sem óprúttnir aðilar nota á netinu.

Gagnaöryggi
Háþróuð tækni til að auka öryggi í gagnaflutningi, hvort sem er gegnum netið eða aðra haldbæra miðla eins og gagnadiska og minnislykla. Komdu í veg fyrir að mikilvæg gögn tapist eða séu tekin í leyfisleysi af vinnustaðnum.

 

Skoðaðu vörurnar okkar nánar í listanum til vinstri, hér fyrir neðan eru tenglar inn á vefsvæði framleiðenda.