Bolungavík - Ísafjörður
Amon
Amon er fræðslu- og þjálfunarkerfi sem hefur verið notað til kennslu og þjálfunar um nokkurt skeið með góðum árangri. Kerfið býður árangursríka leið til að miðla upplýsingum með því að nota hljóð, myndbrot og texta ásamt krossaprófi til að þjálfa og fræða notendur um hvaða viðfangsefni sem er.

Amon kerfið er svokallað LMS kerfi (Learning Management System). LMS kerfi auðvelda til muna fræðslu og þjálfun starfsfólks eða nemenda í stórum hópum þar sem mælanlegur árangur og gæðastjórnun skiptir máli. Öll eftirfylgni er miðstýrð og auðvelt að aðlaga kynningar og próf.

Notendur fara í gegnum kynningu sem samanstendur af textum, ljósmyndum, hljóði og myndbrotum. Að kynningu lokinni taka notendur svo próf úr efni kynningarinnar. Hægt er að velja þann möguleika að vísa notendum beint á þá kafla sem geyma svör við hverri spurningu þar sem aðaltilgangur prófsins er að notandinn læri af því að gera, frekar en að gerð sé krafa um að hann muni allt sem fram kom í kynningunni meðan á próftöku stendur.

Yfirlit
Eiginleikar
Viðbætur
Skjámyndir

Amon er öflugt fræðslu- og þjálfunarkerfi. Kerfið flokkast undir LMS (Learning Management Systems) og styður tengingu við mörg þekkt kynningarkerfi eins og Adobe Presenter.

Kerfið heldur utan um kynningar, námskeið, próf og annað fræðsluefni, stýrir aðgangi að efninu og skráir niðurstöður frá notendum.

Hægt er að búa til próf í kerfinu, sem skráir hvaða notendur hafa tekið prófin, hver einkunn þeirra er og aðrar tölfræðiupplýsingar. Með þessu er hægt að mæla árangur markvisst og tryggja að námsefni skili sér til notenda.

Séu margir stjórnendur, til dæmis kennarar, geta þeir haft nemendahópa hver fyrir sig og stofnað kynningar sem ákveðnir hópar geta séð. Hægt er að senda tilkynningar til ákveðins hóps eða allra nemenda.

Í Amon er einnig spjallkerfi þar sem notendur geta skipst á upplýsingum og ráðleggingum varðandi kynningar og komið með sitt álit á þeim atriðum sem koma fram.

Kynningar geta innihaldið texta, ljósmyndir, hreyfimyndir og hljóðskrár. Stuðningur við flestar gerðir af hreyfimyndaformum eins og Flash, QuickTime, Windows Media og PowerPoint.
Kerfið styður tengingu við kynningarkerfi eins og Adobe Presenter með XML sendingum.
Hægt er að setja upp sérstakt útlit á viðmót kerfisins sem hentar hverjum viðskiptavini fyrir sig.
Hægt er að tengja notendagagnagrunna við kerfið (t.d. Active Directory) svo hægt sé að stýra aðgangi miðlægt.
Hægt að taka afrit af eldri kynningum eða prófum og byggja uppfærða kynningu á efni frá þeirri eldri.

Amon er öflugt tæki til að halda utan um kynningar, stýra aðgangi að þeim og fylgjast með niðurstöðum úr prófum og árangri af kynningum.

Hægt er að gera einfaldar kynningar með ljósmyndum og texta en sé þess óskað að gera margmiðlunarkynningu getum við tekið að okkar slíka vinnu allt frá grafísku efni fyrir kynningu til alls framleiðsluferlisins.

Nánari upplýsingar um gagnvirkar kynningar.