Ester er einfalt og þægilegt bókunarkerfi sem hentar vel fyrir þjónustufyrirtæki eins og heilsu-, nudd-, snyrti-, hárgreiðslustofur sem og allar gerðir leigumiðla svo dæmi séu tekin.
Einn helsti kostur Ester bókunarkerfisins er hversu sveigjanlegt það er og hversu auðvelt er að aðlaga kerfið að nær öllum aðstæðum sem mögulega geta koma upp við margbreytilegar aðstæður við þjónustu starfsfólks fyrirtækja.
Viðskiptavinir geta fengið í gegnum Internetið aðgengi að sínum bókunum, bókað, afbókað og fengið yfirlit yfir allar þær bókanir sem hann hefur gert í kerfinu hjá viðkomandi þjónustuaðila. Kerfið getur sjálfvirkt sent út áminningar í gegnum tölvupóst eða SMS á þá sem hafa bókað þjónustu hjá þjónustufyrirtækjum sem nota Ester bókunarkerfið.
Þjónustufyrirtækin þurfa ekki að fjárfesta í miklum tækjabúnaði fyrir Ester bókunarkerfið. Eingöngu þarf nettengda tölvu með vafra. Viðskiptavinir þjónustufyrirtækja fá sérstakan aðgang að bókunarkerfinu sem er aðgengilegt í gengum Internetið allan sólahringinn, alla daga ársins.
Þjónustufyrirtæknin geta fengið skýrslur úr Ester um nýtingu rýmis, starfsfólks sem og hvaða þjónustuleiðir hafa verið farnar yfir ákveðin tímabil.
Hægt er að fá Ester bókunarkerfið í nokkrum útfærslum þar sem hver og ein þjónar mismunandi tilgangi fyrir mismunandi aðstæður. Kerfið er notað af fjölda notenda hjá þjónustufyrirtækjum á Íslandi sem sækja á innlendan sem og erlendan markað.
Tengingar við önnur kerfi, svo sem bókhalds og reikningakerfi, er leikur einn í Ester bókunarkerfinu og er auðvelt að aðlaga þær tengingar ef þurfa þykir.
Ester er íslenskur hugbúnaður með allar aðgerðir á Íslensku en möguleikar fyrir önnur tungumál eru fyrir hendi.
- Vefbundið kerfi - Kerfið er vefbundið (web-based) og því aðgengilegt allan sólarhringinn hvort sem er fyrir þjónustuveitanda eða viðskiptavini. Eingöngu þarf nettengda tölvu.
- Afrit tekið daglega - Afrit af öllum bókunum eru tekin daglega og öll gögn geymd miðlægt á vefþjónum Nethönnunar.
- Einfalt viðmót - Viðmót fyrir þjónustuveitendur og viðskiptavini er einfalt og þægilegt.
- Aðlögunarhæfni - Kerfið er hægt að aðlaga kerfið nær öllum aðstæðum.
- Deildaskipting - Kerfið hefur deildaskiptingu fyrir mismunandi aðstæður.
- Tengimöguleikar við önnur kerfi - Ester bókunarvélina er hægt að tengja við önnur kerfi í gegnum XML-vefgátt.
- Tölvupósts og SMS-áminningar* - Ester bókunarkerfið getur sent tölvupóstáminningar til viðskiptavina, eins eða fleiri, þegar bókun er gerð og/eða á tilteknum tíma fyrir bókaðan tíma. Hentar vel fyrir bókanir sem eru gerðar með miklum fyrirvara.
- Starfsmannahald - Hægt er að setja inn starfsmenn og vaktir og stillingar fyrir hvern starfsmann. Þessi viðbót hentar vel fyrir þá starfsemi sem þarf að bóka sérhæft starfsfólk fyrir ákveðna þjónustu.
* Kostnaður við SMS-áminningar, uppsetning og verð pr. sms-skeyti, er háður viðskiptasamningi fjarskiptafyrirtækis við þjónustuveitanda í Ester bókunarkerfinu.


