Dynjandi í Arnarfirði
ITBoss
ITBoss er öflugt verkskýrslu- og tímaskráningarkerfi fyrir fyrirtæki og einstaklinga sem vilja hafa gott skipulag á vinnunni. Kerfið hentar bæði litlum og stórum starfs- umhverfum og það er hægt að tengja við mörg kerfi.

ITBoss var upphaflega þróað sem villuskráningarkerfi en hefur með árunum þróast í alhliða stjórntæki fyrir verkefni og tímaskráningu deilda og/eða fyrirtækja. Kerfið hefur verið í þróun síðan 2001.

Öll gögn í kerfinu eru aðgengileg á Internetinu og um leið hvaðan sem er, hvar sem er, hvenær sem er. Kerfið er hægt að tengja við ýmis bókhaldskerfi, sölukerfi og önnur verkstjórnunarkerfi.

Yfirlit
Eiginleikar
Viðbætur
Umsagnir

Internetið
Öll gögn í kerfinu eru aðgengileg á Internetinu og um leið hvaðan sem er, hvar sem er, hvenær sem er.

Sérsnið
Kerfið er auðveldlega hægt að setja upp svo það henti þínum þörfum.

Aðgangsstýring
Öllum aðgerðum í kerfinu er hægt að stýra með hópastýringu. Einnig er einfalt að stýra aðgengi að ákveðnum verkflokkum og/eða fyrirtækjum.

Yfirlit
Hægt er að fylgjast með framgangi verkefna og tímaskráningum tengdum þeim.

Skýrslur
Kerfið getur safnað gögnum úr öllum kerfiseiningum í eina stóra skýrslu og vistað sniðmát að skýrslum fyrir hvern notanda. Hægt er að taka skýrslur úr kerfinu á HTML, Excel eða XML sniði.

Leitarvélin
Öflug leitarvél hjálpar þér að finna það sem þú leitar að hratt og nákvæmlega.

Tölvupóstur
Kerfið sendir tölvupóst á alla viðeigandi aðila þegar einhverjar breytingar eru á verkefnum. Hægt er að skilgreina sniðmát fyrir hverja tegund tölvupósta sem kerfið sendir frá sér.

Vaktkerfi
Notendur kerfisins geta vaktað ákveðinn verkefni svo þeir fái afrit af öllum samskiptum sem varða þau verkefni.

Einfalt í notkun
Kerfið er afar einfalt í notkun og viðmót þess sniðið til að henta öllum notendahópum.

Kerfiseiningar
Kerfið er uppbyggt af 3 stýrieiningum sem styðja hver við aðra en þær eru:

Tasks (Verkefnastjórnun)
Time (Tímaskráning)
Assets (Eignaumsýsla)

 

Skýrslur
Hægt er að taka margskonar skýrslur út úr kerfinu, t.d. tímaskráningar, verkefni og eignir, eða jafnvel binda allt saman í eina stóra skýrslu. Skýrslur úr kerfinu geta verið á eftirfarandi sniðum:

HTML
Excel
XML

ITBoss styður tengingar við önnur kerfi eins og DK. Hægt er að keyra út reikninga samkvæmt skráðum tímum og setja skýringartexta með. Hafðu samband við okkur hafir þú áhuga á að innleiða ITBoss í þínu fyrirtæki og kanna frekar hvaða tengingar er hægt að gera við önnur kerfi.

Ragnar Miguel Herreros, Lánstraust ehf.
Við hjá Lánstrausti höfum notað kerfið undanfarin ár með mjög góðum árangri. Það er einstaklega hraðvirkt hvort sem þú ert að framkalla flókna leit eða útbúa skýrslu.
Við erum að nýta flesta möguleika kerfisins s.s. tímaskráningu, birgðaskráningu og verkskráningar. ITBoss hentar einstaklega vel okkar umhverfi.

Njörður Tómasson, Fjarski ehf.
Fjarski er dótturfélag Landsvirkjunar og hefur notað ITBoss nánast frá upphafi.
Við notum kerfið til að styðja við, skrásetja og fylgjast með verkferlum gæðakerfis okkar. Kostir ITBoss eru þeir að þjónustu- og vinnuferlar og verklagsreglur eru innbyggðar í kerfið. Það er hraðvirkt og áreiðanlegt. Síðast en ekki síst nýtist það okkur sem verkbeiðnakerfi. Þannig tryggjum við samstarf okkar við okkar stærstu viðskiptavini.
Með hjálp vefviðmótsins geta viðskiptavinir fylgst náið með framvindu verka þeirra. Kerfið styður mjög vel við starfsemi fyrirtækisins.

Jónas Antonsson, Gogogic ehf.
Ég hef fylgst með þróun ITBoss frá árinu árinu 2005 og notað kerfið mjög reglubundið. Á þessum tíma hefur orðið ljóst að gríðarlegur metnaður er lagður í að mæta kröfum notenda varðandi virkni og viðbætur. Í dag svarar kerfið vel þörfum okkar og fleiri nýjungar eru væntanlegar sem auka enn á nýtileika þess.