Nethönnun hefur um árabil sérhæft sig í upplýsingatækni til viðskiptavina sinna. Reynsla okkar og þekking skila sér í faglegum vinnubrögðum og ánægðum hópi viðskiptavina.
Nethönnun leitast við að mynda persónuleg en jafnan fagleg tengsl við viðskiptavini sína og ekkert er okkur óviðkomandi þegar þarfir viðskiptavinarins eru annars vegar. Sérfræðingar okkar búa yfir gríðarlegri þekkingu og leitast ávallt við að finna bestu mögulegu lausnina fyrir viðskiptavini okkar.
Þjónusta okkar spannar allt frá ráðgjöf um kerfisrekstur og uppsetningu til daglegs reksturs tölvukerfa viðskiptavina okkar og allt þar á milli.
Við höfum sérhæft okkur í rekstri tölvukerfa og gildir einu hvort miðlarar eru hýstir hjá okkur eða viðskiptavinum. Við gerum alhliða tölvuúttektir sé þess óskað og sjáum um allan almennan rekstur upplýsingakerfa þ.m.t. rekstur útstöðva, gagnagrunna og gagnaafritun.
Nethönnun kappkostar að veita fljóta og góða þjónustu þar sem gæði og fagmennska eru í fyrirrúmi.
Hvert sem málið er, ef það snýr að upplýsingatækni hjálpum við þér að leysa það.








