Ferðaskrifstofan ÍSLANDSVINIR eða ICELAND EXPLORER eins og fyrirtækið þekkist meðal erlendra viðskiptavina var stofnað árið 1998. Fyrirtækið hefur vaxið með hverju árinu og er það fyrst og fremst vegna ánægðra viðskiptavina sem koma til okkar aftur og aftur, hvort sem það eru Íslendingar að ferðast með okkur í ýmis konar ferðum erlendis, eða erlendir ferðamenn og samstarfsaðilar sem kaupa af okkur skipulagðar ferðir hér innanlands.
Nethönnun hannaði og setti upp nýjan vef fyrir Explorer. Leitast var eftir að gera náttúru Íslands góð skil með stórum og fallegum myndum og gera fólki auðvelt að sjá hvað Ísland hefur upp á að bjóða yfir hvern árstíma. Vefurinn var sérstaklega settur upp með það í huga að starfsfólk Explorer gæti á auðveldan hátt séð um alla efnisinnsetningu.
Viðskiptavinur:
Explorer ehf.
Okkar hlutverk:
- Vefhönnun
- Forritun og uppsetning á vef og vefumsýslukerfi
- Hönnun og útfærsla á Flash borðum


