Klasi ehf er fasteignaþróunarfélag sem sérhæfir sig í að þróa, eiga og reka fasteignir með áherslu á langtímaeignarhald á skrifstofu- og verslunarhúsnæði. Klasi bíður einnig upp á víðtæka ráðgjöf og þjónustu í tengslum við fasteignarekstur, þróun fasteigna og skipulag.
Nethönnun hannaði og setti upp nýjan vef fyrir Klasa. Vefurinn átti að vera fágaður og stílhreinn þar sem verkefni og eignir félagsins yrðu í aðalhlutverki. Miklu máli skipti að vefurinn yrði mjög myndrænn þar sem hægt væri að fylgjast grannt með verkefnum og eignum Klasa.
Viðskiptavinur:
Klasi ehf.
Okkar hlutverk:
- Vefhönnun
- Forritun og uppsetning á vef og vefumsýslukerfi
- Hönnun og útfærsla á Flash borðum


