það hefur reynst okkur vel að geta fengið heildarþjónustu á rekstri vélbúnaðar og þjónustu við hin ýmsu server- og stýrikerfi svo og alla afritun, vírusvarnir og fleira. Með einn aðila ábyrgan er verkaskiptingin skýr og hagkvæmni náð.
Jóhann Jónasson
Framkvæmdastjóri
Ég hef leitað til Nethönnunar vegna margvíslegra verkefna undanfarin 6 ár. Mín reynsla af starfsmönnum Nethönnunar og vinnu þeirra er góð og ég mæli hiklaust með vörum og þjónustu þeirra. Mikilvægt er fyrir fyrirtæki að fá hraðvirka þjónustu og tæknilegar lausnir og hefur það verið mín reynsla af samskiptum við Nethönnun.
Gunnar Ingi Björnsson
Forstöðumaður Sölu- og markaðssviðs
Nethönnun brást snöggt við þegar við komum með okkar sérhæfðu kröfur fyrir rafrænt fréttabréf, og voru liðlegir með þær breytingar sem við svo stungum upp á. Kerfið þjónar öllum okkar þörfum, og aldrei hefur verið neitt vandamál með þjónustuna.
Björgvin Brynjólfsson
Netstjóri, Eimskip
Nethönnun sáu um hönnun á heimasíðunni samuelandgunnar.com frá A til Ö. Við viljum bara þakka fyrir frábæra vinnslu og fljóta og örugga þjónustu sem við höfum fengið frá Örvari Halldórssyni og hans starfsfélögum. Síðan hefur vakið mikla athygli bæði hér heima sem og erlendis og þökkum við Örvari fyrir framúrskarandi þjónustu þegar breytinga hefur verið þörf. Við eigum pottþétt eftir að vinna meira með Nethönnun og því góða fólki sem er þar.
Samúel Bjarki og Gunnar Páll
Auglýsingaleikstjórar
Alltaf til reiðu búnir og leysa vandamál sem upp koma bæði hratt og örugglega.
Sveinn Björnsson
CEO
Nethönnun hefur unnið uppfærslu á gömlum vef TrackWell í nýjan sem keyrir á WebMAN vefumsýslukerfinu.
Starfsmenn nethönnunar eru faglegir og liprir í samskiptum Aðgengi að tæknimönnum er óhindrað og samksiptaleiðir eru stuttar. Það er því sönn ánæga að vinna með Nethönnun.
Þórður Ingason
Sölu- og markaðsstjóri
FHI hefur leitað til Nethönnunar vegna ráðgjafar á nýjum vef og leiðbeiningar á uppsetningu.
ótrúlega auðveld vinna í kringum uppsetningu og viðhald á síðunni. Vona í framhaldinu að vefur fhi fái mikla skoðun.
Hallgrímur Friðgeirsson
Formaður FHI
Þegar Nethönnun keypti rekstur Greindar, sem áður rak heimasíðu Djúpavogshrepps, færðist rekstur síðunnar til Nethönnunar. Fljótlega eftir flutninginn voru uppi hugmyndir um að lappa aðeins upp á vefinn. Bæði þurfti að stækka hann og eins að fríska upp á útlitið. Starfsmenn Nethönnunar gerðu okkur tilboð bæði í stækkun og „fríkkun“, afar sanngjarnt tilboð sem ákveðið var að ganga að. Þá fór í gang hönnunarferli sem var undir stjórn Örvars Halldórssonar, hönnunarstjóra Nethönnunar. Það er ljóst að Örvar er afar fær á sínu sviði. Vefnum okkar er skipt niður í aðalvef og 5 undirvefi og hefur hver vefur sitt litaþema. Þegar kemur að litaþema er Örvar algjörlega á heimavelli, því hann vann út mismunandi tóna fyrir hvern lit af stakri snilld og við erum afskaplega sátt við útkomuna. Endurhönnunin á útlitinu sjálfu er líka mjög stílhrein og flott og alveg eins og við óskuðum. Hönnunarferlið tók stuttan tíma og höfðum við að sjálfsögðu allt um það að segja hvað við værum sátt við og hvað ekki, en þegar upp var staðið var sáralítið sem við höfðum út á hönnunina að setja.
Ólafur Björnsson
Tæknistjóri, Djúpavogshreppur
Golfklúbburinn Oddur hefur leitað til Nethönnunar vegna veflausna, hýsingar og ráðgjafar. Afbragðs þjónusta og gott að eiga viðskipti við fyrirtækið.
Hjörtur Fr. Vigfússon
Framkvæmdastjóri
Viðmót starfsmanna Nethönnunar hefur verið til fyrirmyndar í alla staði varðandi þá þjónustu sem hjálparsamtökin Enza hafa fengið hjá fyrirtækinu. Það gekk hratt og vel að koma upp heimasíðu fyrir Enza, útkoman var einkar góð og samskiptin hafa bæði verið fagleg og persónuleg.
Sigríður Guðlaugsdóttir
Varaformaður stjórnar
Vox feminae setti nýjan vef kórsins í loftið í nóvember 2008. Vefurinn var unninn í Webman kerfinu frá Nethönnun. Ég hafði ekki áður unnið með Webman kerfið og það kom mér skemmtilega á óvart hversu auðvelt og þægilegt það er í notkun. Möguleikar þess hentuðu okkar þörfum mjög vel. Vinna við uppsetningu vefsins gekk hratt og vel fyrir sig og ég var afar ánægð með þá þjónustu sem ég fékk hjá starfsmönnum Nethönnunar í því ferli. Leyst var úr öllum vandamálum hratt og vel og öll verðtilboð stóðust. Ég er afar ánægð með þjónustu Nethönnunar og nýja vefinn okkar.
Hallveig Andrésdóttir
Gjaldkeri stjórnar


