Silfurtorg á Ísafirði
Afritun og öryggi

Afritunarlausnir

Nethönnun hefur einn allra fullkomnasta afritunarbúnað sem völ er á. Við bjóðum upp á afritunarlausnir sem henta flestum. Afritun er án efa mikilvægasti þátturinn í rekstri hvers tölvuumhverfis. Kerfi og gögn verða fyrir óhöppum (stórum eða smáum) og gögn tapast, það er engin spurning. Það er bara spurning hvenær þau gerast, hversu slæm þau eru og hversu vel þú ert undirbúinn. Það er mikilvægt að þú sért með þín mál á hreinu því að tjón af völdum gagnataps er oft gríðarlega kostnaðarsamt. Vertu 100% viss um að þú hafir pottþétta aðgerðaáætlun ef eitthvað kemur fyrir tölvukerfið þitt.

Með réttum búnaði, öguðum vinnubrögðum og góðu viðbragði má lágmarka það tjón sem verður þegar óhöpp gerast, hafðu í huga að gögnin eru aðeins hálförugg þegar búið er að afrita þau á spólur. 

Vírusvarnir
Á hverjum degi verða til nýir og fullkomnari vírusar sem hafa það eitt að markmiði að skaða og veikja tölvukerfi á einn eða annan hátt. Þetta er stöðug ógn við öll kerfi sem tengd eru Internetinu. 
Það er skylda allra þeirra sem að rekstri tölvukerfa standa að sjá til þess að nýjustu og bestu vírusvarnir séu til staðar og ávallt uppfærðar.

Nethönnun er endursöluaðili fyrir Sophos sem er ein fullkomnasta vírusvörnin á markaðnum í dag. Sophos er miðlæg vírusvörn sem gerir yfirumsjón afar auðvelda og leikur einn er að halda útstöðvum tölvukerfa ávallt uppfærðum með nýjustu vírusvarnarmynstrum sem til eru.

Við bjóðum upp á vírusvarnir einar og sér eða sem hluta af þjónustupakka okkar. Hafðu samband við sölumenn okkar og fáðu nánari upplýsingar um afritunar- og öryggislausnir.

Næstu skref

Hafðu samband við okkur og fáðu nánari upplýsingar um kerfisrekstur.

Smelltu hér