Vörur

Hér má sjá lista yfir hugbúnaðarlausnir sem Nethönnun þróar eða hefur til endursölu. Vörurnar okkar eru sýndar hér fyrir neðan en endursöluvörur eru undir Öryggislausnir og Kerfisstjórnun. Hugbúnaðarlausnirnar okkar hafa verið í þróun í mörg ár og eru í notkun hjá fjölmörgum íslenskum fyrirtækjum. Okkar eigin vörumerki eru merkt sérstaklega til að benda á að lausnirnar eru íslensk framleiðsla fyrir íslensk fyrirtæki. Vörur sem við höfum til endursölu eru allar í hæsta gæðaflokki og meðal þeirra bestu á hverju sviði en þó á viðráðanlegu verði fyrir íslensk fyrirtæki.

WebMAN 2.0 vefumsýslukerfið hefur verið í stöðugri þróun frá 2003. Kerfið er mjög öflugt vefumsýslutól en jafnframt þægilegt og einfalt í notkun.
Meira
ITBoss er öflugt verkskýrslu- og tímaskráningarkerfi fyrir fyrirtæki og einstaklinga sem vilja hafa gott skipulag á vinnunni. Kerfið hentar bæði litlum og stórum starfs- umhverfum og það er hægt að tengja við mörg kerfi.
Meira
Ester bókunarkerfið hefur verið í stöðugri þróun síðan 2004. Allt frá byrjun hefur markmiðið verið að mæta kröfum þeirra sem veita þjónustu, gefa þeim gott aðgengi að bókunarupplýsingum á miðlægum og aðgengilegum stað á netinu. Á sama tíma hefur Ester bókunarkerfið veitt þeim hóp sem sækir þjónustu, möguleika á að bóka, staðfesta og ganga frá greiðslum með einföldum hætti allt í gegnum Internetið.

Ester er einfalt og þægilegt bókunarkerfi sem hentar vel fyrir þjónustufyrirtæki eins og heilsu-, nudd-, snyrti-, hárgreiðslustofur sem og allar gerðir leigumiðla svo dæmi séu tekin.
Meira
Amon er fræðslu- og þjálfunarkerfi sem hefur verið notað til kennslu og þjálfunar um nokkurt skeið með góðum árangri. Kerfið býður árangursríka leið til að miðla upplýsingum með því að nota hljóð, myndbrot og texta ásamt krossaprófi til að þjálfa og fræða notendur um hvaða viðfangsefni sem er.
Meira