Fjaran í Súgandafirði
Kerfisveita

Með því að nýta kerfisveitu Nethönnunar lækkar rekstrarkostnaður umtalsvert þar sem bæði vél- og hugbúnaður er geymdur hjá okkur í öruggum vélarsal með fullkomnu kælikerfi, afritunarlausnum, varaaflgjöfum og sólarhringsvöktun.

Með okkar milligöngu fást betri kjör á hugbúnaðarlausnum og tæknimenn okkar hafa víðtæka þekkingu á uppsetningu og viðhaldi þeirra. Þar sem öll kerfin eru hýst hjá okkur þarf ekki að fjárfesta í netbúnaði, öðrum en þeim sem kemur starfsmönnum í viðunandi Internet samband. Þetta sparar miklar fjárhæðir. Búnaðurinn sem kerfin okkar keyra á er af bestu gerð og mun stærri fjárfesting en flest fyrirtæki ráðast í. Með því að samnýta þennan búnað fyrir alla okkar viðskiptavini er hægt að nýta búnað sem fá einstök fyrirtæki hafa tök á að eiga.

Næstu skref

Hafðu samband við okkur og fáðu nánari upplýsingar um kerfisrekstur.

Smelltu hér