Með altækum rekstri er allur rekstur í höndum Nethönnunar. Hvort sem um er að ræða miðlægan búnað eða búnað útstöðva fyrirtækisins. Við höfum mikla reynslu af altækum rekstri þar sem tölvukerfi eru á mörgum stöðum, jafnvel vítt og breitt um landið. Við sjáum um alhliða viðhald og rekstur kerfisins, og uppsetningu þegar ný útibú eða útstöðvar eru opnaðar.
Altækur rekstur hefur alltaf í för með sér mikla hagræðingu hjá þeim fyrirtækjum sem velja þá leið. Einnig er mun auðveldara að halda utan um föst útgjöld vegna reksturs tölvudeilda þar sem altækur rekstur er fastur útgjaldaliður samkvæmt þjónustusamningi um reksturinn.
Flest fyrirtæki eiga erfitt með að byggja upp þekkingu starfsmanna á öllum þeim búnaði, kerfum og lausnum sem eru í notkun í kerfisrekstri í dag. Starfsmenn okkar hafa það sérhæfða hlutverk að verða sér stöðugt út um þekkingu og skilning á öllum þessum lausnum og eru því í betri stöðu til að veita þjónustu við þessi kerfi.
Hafðu samband við okkur hafir þú áhuga á að fá tilboð í altækan rekstur.


