Önundarfjörður
Útlit og viðmót

Þegar við höfum skipulagt verkið hefjumst við handa við vefhönnun sem er unnin samkvæmt þeirri þarfagreiningu sem kom fram í undirbúningsferlinu. Unnið er náið með viðskiptavini þar til útlit vefsins, virkni og skipulag liggur fyrir.

Við getum hannað vefi í öllum stærðum og gerðum. Fyrir stærri vefi sem miða við að ná fram ákveðnum markmiðum í miðlun efnis og markaðssetningu mælum við með að viðmótshönnun sé unnin frá grunni samkvæmt þeim þörfum og kröfum sem koma fram í greiningu. Við getum einnig sett upp einföld vefviðmót sem eru fyrirfram stíliseruð til að auðvelda vinnu við uppsetningu. Við getum einnig unnið með auglýsingastofum fyrirtækja sé þess óskað og fengið tillögur frá þeim eða unnið að tillögum í samstarfi við þá.

Vantar þig veflausnir?

Sendu okkur tilboðsbeiðni og við svörum þér hratt og örugglega.

Fá tilboð í veflausnir