Sólsetur á Arnarnesi
Greining og skipulag

Þegar gera á nýjan vef eða uppfæra eldri vef er fyrsta skrefið þarfagreining. Hún felur í sér að skilgreina þörfina sem er til staðar og þau markmið sem stefnt er að. Við hittum þig á fundi og tökum með þér hugarflugsfund (brainstorming) þar sem við förum yfir vonir og væntingar þínar til vefsins. Þegar þessi atriði eru komin á hreint höfum við mjög mikilvægar og gagnlegar upplýsingar í höndunum til að vinna úr og koma með úrlausn sem hentar.

Við skipuleggjum næst verkefnið og skilgreinum hlutverk þeirra sem að verkinu koma. Með Scrum aðferðafræðinni gerum við hlutverk hvers og eins skilvirkara með því að nýta vefvænt skipulagstól til að úthluta verkefnum og gera grein fyrir framgangi mála. Viðskiptavinurinn getur tekið þátt í ferlinu og fylgst náið með gangi mála á öllum vígstöðvum. Í skipulagsferlinu kemur í ljós hvert umfang vefsins verður, hvernig veftré verður skipulagt og hvaða þætti þarf að leggja áherslu á. Þessar upplýsingar nýtast til dæmis mjög vel í leitarvélabestun og er hagkvæmast að gera ráð fyrir henni strax frá upphafi.

Vantar þig veflausnir?

Sendu okkur tilboðsbeiðni og við svörum þér hratt og örugglega.

Fá tilboð í veflausnir