Tankurinn í Önundarfirði
Eirvík

Eirvík heimilistæki ehf. var stofnað 1994. Félagið hóf verslunarrekstur á Vesturgötu 25 en flutti starfsemi sína fljótlega að Suðurlandsbraut 22 og síðar að Suðurlandsbraut 20 þar sem starfsemi félagsins hefur vaxið og dafnað síðan. Eirvík státar af mörgum þekktum vörumerkjum á sviði heimilistækja og innréttinga. Vörumerki eins og Miele, Liebherr, Smeg, Bulthaup, General Electric og Elica eru meðal þeirra sem Eirvík selur í verslun sinni.

Eirvík leitaði til Nethönnunar til að fá nýjan vef með vefverslun. Leitast var eftir því að hanna mjög faglegan og þægilegan vef til að endurspegla þá fágun sem fyrirtækið stendur fyrir og vörumerki þeirra. Vefurinn inniheldur fullkomna vefverslun fyrir heimilis- og raftæki fyrir bæði einstaklinga og fyrirtæki.

Leitast var við að gera vefinn eins fullkominn í stjórnun og hægt er og voru allir hlutar vefsins gerðir stjórnanlegir af vefstjóra Eirvíkur. Allt frá því að skipta grafík á Flash borðum í að breyta tæknilýsingum á vörum í vefverslun eða breyta tenglum og upplýsingum á hliðarborðum eða bannerum vefsins. Öllu er hægt að stýra úr WebMAN vefumsýslukerfinu á einfaldan og fullkominn hátt.

Viðskiptavinur:
Eirvík ehf.

Okkar hlutverk:

  • Vefhönnun
  • Forritun og uppsetning á vef og vefverslun með tengingu við DK
  • Hönnun og útfærsla á Flash borðum með CMS tengingu
  • Hönnun á innréttingavefjum
Önnur verk