Verkefni í upplýsingatæknigeiranum verða sífellt umfangsmeiri og flóknari. Miklu máli skiptir að hafa yfirumsjón með öllum verkþáttum og skilning á hverjum verklið fyrir sig. Verkefnastjórar Nethönnunar hafa aflað sér víðtækrar menntunar í verkefnastjórnun og reynslu í undirbúningi og skipulagningu verkefna þar sem gerð er framkvæmdaáætlun og kostnaðaráætlun og eftirlit haft með þeim til að tryggja að eftir þeim sé farið.
Helstu hlutverk verkefnastjóra:
- Að skilgreina markmið verkefnisins út frá viðmiðum um árangur, tíma, kostnað og áhættu.
- Að móta áætlun til að ná settum markmiðum og framfylgja þeirri áætlun.
- Að nota réttar aðferðir við stjórnun verkefnisins, áætlanagerð og eftirlit.
- Að kalla til hæfa einstaklinga, sem hafa þekkingu til að leysa einstök verk, til að vinna að verkefninu.
Verkefnastjórnunin skiptist í eftirfarandi þrep:
1. Hugmyndaþrep
Í hugmyndaþrepinu er verkefnishugmyndin skilgreind. Kröfur sem gerðar eru til verkefnisins eru settar fram og umfang verkefnisins skilgreint.
2. Forathugunarþrep
Frekari upplýsinga er aflað hjá viðskiptavinum eftir að búið er að gera þarfagreiningu á verkefninu. Nauðsynlegra upplýsinga er aflað til að útfæra verkefnið og skipuleggja það.
3. Skipulagsþrep
Skilgreind eru markmið og væntingar um árangur. Þegar markmið verkefnis liggja fyrir er gerð áætlun um framkvæmd þess og hvernig eftirliti með framvindu verði háttað.
Skipulagsþrepið svarar eftirfarandi grundvallarspurningum:
- Hvað á að gera?
- Hvers vegna?
- Hvernig?
- Hver?
- Hvenær?
- Hversu miklu af vinnuafli og fjármagni á að verja í verkefnið?
4. Framkvæmdaþrep
Fullgerð framkvæmdaáætlun, sem byggð er á virkri þátttöku allra sem framkvæma eiga einstaka þætti verkefnisins og hafa hagsmuna að gæta, liggur nú fyrir.
5. Skilaþrep
Lagt er mat á afrakstur verkefnisins og upplýsingum um árangur skilað til viðskiptavinarins. Reynslusaga um verkefnið er gerð til að meta árangur þess.
Hafðu samband við okkur og fáðu nánari upplýsingar um þær þjónustuleiðir sem við bjóðum.


