Sólsetur á Arnarnesi
Greining og ráðgjöf

Þegar fyrirtæki stíga sín fyrstu skref inn á nýja braut, hvort sem um er að ræða hönnun nýrra kerfa eða uppstokkun eða stækkun á gömlum er oft þörf á ráðgjöf fagmanna áður en haldið er af stað. Tölvukerfi eru engin undantekning frá þessari reglu. Tölvukerfin, sem Nethönnun hefur hannað og/eða veitt ráðgjöf við hönnun, skipta orðið tugum og ljóst er að reynsla fyrirtækisins á þessu sviði mun koma til með að gagnast öðrum í framtíðinni.

Áralöng reynsla og þekking á rekstri og viðhaldi tölvukerfa gera okkur kleift að gera nákvæmar úttektir og áætlanir fyrir tölvu- og netkerfi. Rekstur og öryggi eru ávallt í fyrirrúmi. Við vitum að þekking og gögn viðskiptavina okkar eru lífæð þeirra og það er markmið okkar að tryggja ávallt uppitíma og öryggi.

Við bjóðum viðskiptavinum okkar ráðgjöf við hönnun, uppsetningu og rekstur tölvukerfa. Við getum séð um verkefnastjórnun, stefnumótun, innleiðingu gæðastjórnunar með notkun gæðastaðla og gæðastjórnunarkerfa, sem og allt tengt öryggismálum í rekstri og viðhaldi tölvukerfa.

Úttektir
Við hlustum á óskir og þarfir viðskiptavina og gerum úttekt á kerfum í samræmi við þær. Markmiðið er að sjálfsögðu að  bæta það sem betur má fara og yfirfara alla þætti þeirra kerfa sem í notkun eru með tilliti til öryggis og rekstrarhagræðingar. Til viðmiðunar eru hér fáein atriði sem við höfum í huga, athugið að listinn er ekki tæmandi.

Uppfærslur útstöðva og miðlara
Vírusvarnir
Afritun og endurheimtun, ferli
Réttur rekstur og viðhald gagnagrunna
Aðgengi & öryggi
Miðju- og netbúnaður


Eru kerfin mín í lagi?

Oft eru stjórnendur í góðri trú um að kerfi þeirra séu í lagi, en þó að kerfi virki dagsdaglega er alls ekki gefið að reksturinn sé í lagi, huga þarf að ótal hlutum sem tryggja, fyrirbyggja og lágmarka skaða ef tölvukerfi verða fyrir skakkaföllum.

Þarf ég ráðgjöf?
Ef þú ert ekki viss er svarið að öllum líkindum já. Upplýsingakerfi flestra fyrirtækja skipta sköpum fyrir tilvist þeirra. Sért þú ekki viss hvernig málum er háttað hjá þér skaltu hafa samband við okkur. Þú vilt vera viss um að bókhaldsgögnin þín sem og önnur vinnutengd göng séu 100% örugg.

Lausnir okkar
Verkefnastjórnun
Stefnumótun
Gæðastjórnun
Upplýsingaöryggi