Nethönnun rekur öfluga vefdeild sem hefur mikla reynslu af hönnun og uppsetningu á vefsvæða. Við höfum annast fyrirtækjavefi með stór veftré sem skiptast milli ólíkra deilda og einfalda myndræna vefi þar sem hönnun og hreyfigrafík eru í fyrirrúmi. Verkefnin skipta hundruðum og verða sífellt fleiri.
Það er stefna okkar að þróa vandaða og notendavæna vefi sem nýta hagkvæmustu og skilvirkustu þróunartól sem völ er á hverju sinni. Markmiðið er ekki bara að hanna flotta vefi og setja þá upp í vefumsýslukerfi svo hægt sé að uppfæra þá á auðveldan hátt, heldur einnig að skila viðskiptavinum okkar árangri.
Nethönnun býður heildarlausn í vefmálum þar sem við byrjum á að greina þörfina og veita ráðgjöf þar sem markmið eru fundin. Næst er verkefnið skipulagt og verkefnum úthlutað. Við notumst við Scrum aðferðafræði í vinnslu á veflausnum okkar og geta viðskiptavinir tekið þátt í ferlinu sé þess óskað.
Þó að nýr og flottur vefur, sem keyrir í vefumsýslukerfi sem gerir uppfærslur auðveldar, sé kominn í loftið þýðir það ekki að markmiðum sé náð. Til þess gæti þurft að markaðssetja vefinn og skilgreina markaðinn sem hann á að höfða til. Við bjóðum mjög ítarlega og öfluga leitarvélabestun, markhópagreiningu, samkeppnisgreiningu, markaðs- og auglýsingaherferðir á netinu og innleiðingu samfélagsneta til að markaðssetja vörur og þjónustu og efla tengslanet.
- Greining og skipulag
- Útlit og viðmót
- Vefun og þróun
- Efnisinnsetning
- Markaðssetning á netinu
- Tölfræðigreining
- Leitarvélabestun
- Samfélagsvefir


