Kambur, Lambatindur og Byrgisvíkurfjall í Árneshreppi
Hýsing

Kerfishýsing
Við hýsum miðlara þína hjá okkur, þeir eru vel geymdir í fullkomnum tækjasal þar sem nostrað er við þá. Þeir eru tengdir fullkomnasta afritunarkerfi sem völ er á í dag og þú tengist miðlurunum með ljósleiðaraneti eins og þeir væru í næsta herbergi. Ekki geyma netþjóninn i geymslunni eða ræstikompunni! Það felst mikið öryggi í því að vera með vélbúnaðinn „Off site“.

Vefhýsing
Þörf fyrirtækja og einstaklinga fyrir greið samskipti verður seint ofmetin, sérstaklega á þessum síðustu og upplýstustu tímum. Núverandi og framtíðar viðskiptavinir vilja geta haft aðgang að öllum upplýsingum hvenær sem er, auk þess að geta sent starfsfólki línu með tölvupósti. Til þess að þetta verði að raunveruleika verður að reka vef- og pósthýsingu. Nethönnun býður upp á margvíslega hýsingarpakka, enda er rekstur flestra mögulegra og ómögulegra Internetþjónusta okkar fag.

Póstur
Meðal þeirrar þjónustu sem Nethönnun býður í hýsingu er afar fullkomið vefpóstkerfi. Allar tengingar við vefpóstkerfið eru dulkóðaðar til að tryggja hámarksgagnaöryggi. Allur póstur sem fer í gegnum póstkerfi Nethönnunar er vírusleitaður og hreinsaður, til að forða notendum þess frá áföllum af völdum tölvuveira.

Lén og nafnaþjónusta
Með aukinni útbreiðslu Internetsins, og þá sérstaklega veraldarvefsins (world wide web), hefur það færst gífurlega í aukana að fyrirtæki og einstaklingar festi sér sitt nafn (stundum jafnvel fleiri en eitt) á Internetinu. Þessi nöfn eru kölluð „lén“ (domains).
Þegar slíkt nafn hefur verið skráð er svo hægt að hafa ýmislegt á bak við nafnið, t.d. vef og tölvupóst. Nethönnun býður upp á fulla þjónustu við skráningu og viðhald slíkra nafna.

Þjónustuleiðir
Kerfishýsing
Vefhýsing