Vefhýsing
Við bjóðum upp á alhliða vefhýsingu. Við getum hýst statíska HTML vefi, vefi með vefumsýslukerfum í PHP, ASP eða .NET og gagnagrunnstengda vefi með MySQL, MS SQL eða Oracle grunnum. Viðskiptavinir sem fá sér vefi í WebMAN vefumsýslukerfinu eða annað kerfi eru með hýsingu hjá okkur í Silfur eða Gull áskrift. Einnig er hægt að fá Brons hýsingu hjá okkur fyrir hýsingu á einföldum nafnspjaldavefjum og HTML vefjum.
Áskriftarpakkarnir eru tilboðspakkar og getur því verið betra að velja þá frekar en einstaka þjónustuliði þó hluti þeirra sé ekki nýttur.


